Það eru góðar líkur á því að spænski miðjumaðurinn Thiago verði klár í slaginn fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun.
Thiago fór meiddur af velli í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar gegn Úlfunum.
Eftir þann leik var Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ekki bjartsýnn um það að Thiago gæti spilað gegn Real Madrid í úrslitaleiknum í París, en núna er annað hljóð í honum.
„Það eru góðar líkur á því að hann verði klár," sagði Klopp við fréttamenn í vikunni.
Spænski miðjumaðurinn hefur verið að taka þátt á æfingum og möguleiki að hann verði með á laugardag. Það eru jákvæðar fréttir fyrir Liverpool.
Athugasemdir