Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. maí 2022 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mendy heldur með Liverpool í úrslitunum
Edouard Mendy.
Edouard Mendy.
Mynd: EPA
Edouard Mendy, markvörður Chelsea, kveðst halda með Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun.

Liverpool spilar við Real Madrid í úrslitaleiknum í París.

Í liði Liverpool Sadio Mane, landi Mendy, og því heldur markvörður Chelsea með Liverpool á morgun.

„Ég vil auðvitað að Sadio vinni Meistaradeildina," sagði Mendy í samtali við Foot Mercato.

Hann telur að Mane sé í baráttunni um að vinna Ballon d'Or, verðlaun sem eru veitt besta leikmanni heims á ári hverju. Mendy segir að sigur í Meistaradeildinni geti hjálpað honum að vinna þau verðlaun.

Mendy var sjálfur í sigurliði Meistaradeildarinnar í fyrra er Chelsea lagði Man City í úrslitaleiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner