Tottenham er að krækja í hinn 34 ára gamla Fraser Forster á frjálsri sölu frá Southampton.
Forster mun fylla í skarð Ítalans Pierluigi Gollini sem varamarkvörður fyrirliðans Hugo Lloris. Gollini snýr aftur til Atalanta eftir lánssamninginn en hann er orðaður við félagaskipti til Fiorentina.
Forster lék 19 úrvalsdeildarleiki með Southampton á nýliðnu tímabili og á í heildina 162 leiki að baki fyrir félagið, þar af 134 í úrvalsdeildinni.
Hann hefur verið hjá Southampton síðustu 8 ár en þar áður var hann aðalmarkvörður hjá Celtic í Skotlandi. Forster lék svo aftur fyrir Celtic á lánssamningi fyrir þremur árum.
Markvörðurinn hávaxni á 6 landsleiki að baki fyrir England.
Athugasemdir