Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
   mið 27. maí 2026 23:31
Gylfi Már Þórðarson
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Lengjudeildin
Brynjar Björn, þjálfari Leiknis
Brynjar Björn, þjálfari Leiknis
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leiknismenn mættu í Árbæinn og töpuðu 3-0 gegn toppliði Fylkis í Lengjudeild karla í kvöld. Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis var að vonum svekktur í lok leiks.

"Leikurinn var tiltölulega jafn, Fylkir voru kannski aðeins með yfirhöndina á leiknum en það eru svona lykilaugnablik sem við klikkum í, fyrirgjöf í fyrsta markinu og svo tvö föst leikatriði sem við höfum verið góðir í. Það er svona aðeins að koma í bakið á okkur. Færin sem við fáum, við gerum ekki nóg úr þeim."


Lestu um leikinn: Fylkir 3 -  0 Leiknir R.

Við vorum alltaf að reyna. Í stöðunni 1-0 áttum við stöður til að jafna leikinn. Ég verð að setja spurningarmerki við dómarann, það er klárt brot á Óla í þriðja markinu, það er hoppað inn í hann. Það er líka spurning í öðru markinu, hann er kominn með höndina á boltann á línunni og það er pikkað í hann. Ef það er raunin þá eru það tvö ódýr mörk og staðan gæti enn verið 1-0 og við ennþá í leiknum.

Langt er síðan að Leiknismenn sóttu sigur en það var í annarri umferðinni á móti Gróttu þann 1. maí.

"Við erum heilt yfir búnir að spila vel, ég tel okkur eiga að vera með tveimur til þremur fleiri stig en við erum í rauninni með. Þetta er staðan og það er bara næsti leikur og við höfum fulla trú á því sem við erum að gera."

Fullt viðtal við Brynjar Björn er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner