Fotbolti.net
17.06.26 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tvö félög mega ekki nýta sér ákvæðið hjá Rashford

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur komið í veg fyrir að tveir stærstu erkifjendur félagsins geti virkjað ákvæði í samningi Marcus Rashford.

Samkvæmt fréttum frá Englandi getur hvorki Liverpool né Manchester City nýtt sér 40 milljóna punda söluákvæði í samningi enska landsliðsmannsins, á meðan önnur félög geta gert það.
Rashford er á leið aftur til Manchester United eftir lánsdvöl hjá Barcelona á síðustu leiktíð. Katalónska félagið ákvað að virkja ekki kauprétt sinn á sóknarmanninum þrátt fyrir að hann hafi átt góðu gengi að fagna á Spáni.

Hinn 28 ára gamli Rashford lék 49 leiki fyrir Barcelona á tímabilinu, skoraði 14 mörk og lagði upp önnur 14. Hann átti einnig stóran þátt í að Barcelona tryggði sér spænska meistaratitilinn.

Ekki er útilokað að Rashford verði hjá Manchester United á næstu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.