Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
banner
   mið 27. maí 2026 18:06
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Palace og Vallecano: Wharton byrjar
Mynd: EPA
Crystal Palace býr sig undir sinn fyrsta úrslitaleik í Evrópukeppni og á möguleika á því að vinna sinn annan stóra titil í sögunni þegar liðið mætir Rayo Vallecano í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar. Leikið er í Leipzig í Þýskalandi og hefst leikurinn 19:00.

Oliver Glasner stýrir Palace í síðasta sinn í kvöld en hann hefur ákveðið að kveðja félagið, eftir öfluga uppskeru síðustu tólf mánuði. Liðið vann bikarmeistaratitilinn á síðasta tímabili og lyfti svo Samfélagsskildinum. Það hafnaði hinsvegar í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Lykilmaðurinn Adam Wharton var tæpur fyrir leikinn í kvöld vegna ökklameiðsla en gat æft í gær og er í byrjunarliðinu í kvöld.

Rayo Vallecano náði ekki að tryggja sér Evrópusæti í gegnum spænsku deildina og þarf því að vinna sigur í kvöld til að taka þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Byrjunarlið Palace:
Henderson; Muñoz, Riad, Lacroix, Canvot, Mitchell; Wharton, Kamada; Pino, Sarr, Mateta.
(Varamenn: Benítez, Matthews, Lerma, Johnson, Clyne, Hughes, Strand Larsen, Sosa, Richards, Guessand, Devenny, Cardines)

Byrjunarlið Rayo Vallecano:
Batalla; Ratju, Lejeune, Ciss, Chavarría; López, Valentin, Palazón; Garcia, Alemao, De Frutos.

Úrslitaleikur Sambandsdeildarinnar:
19:00 Crystal Palace - Rayo Vallecano


Slapp
banner