Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 21:30
Kári Snorrason
„Eins og hjónaband"
Líður vel í Lundúnum.
Líður vel í Lundúnum.
Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn João Palhinha segist vilja ólmur vera áfram hjá Tottenham eftir að hafa verið á láni frá Bayern München á tímabilinu.

Palhinha, sem kom til Spurs á eins árs láni í ágúst með kauprétt upp á um 30 milljónir evra, lék 45 leiki í öllum keppnum og skoraði sjö mörk. Hann átti gott tímabil þrátt fyrir erfitt gengi liðsins.

„Frá fyrsta degi hefur mér liðið eins og heima hjá mér. Þetta er toppklúbbur. Hver myndi ekki vilja spila fyrir Tottenham og vera hér áfram? Ég hef allt hér,“ segir Palhinha.

Hann gekk jafnvel svo langt að líkja sambandi sínu við félagið við hjónaband: „Þetta er eins og hjónaband.“

Tottenham á möguleika á að kaupa hann fyrir um 30 milljónir evra, en Roberto De Zerbi, stjóri Spurs, hefur þegar lýst því yfir að hann vilji halda honum.

Lundúnaliðið endaði tímabilið í 17. sæti og hafa átt tvö erfið tímabil í röð, en Palhinha segist sannfærður um að liðið muni bæta sig á næsta tímabili.

Slapp
banner
banner
banner