Enzo Fernandez vill yfirgefa Chelsea og er félagið tilbúið að láta hann fara fyrir 120 milljónir punda.
Enzo var meðal bestu manna Chelsea á annars erfiðu tímabili. Liðið endaði í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og verður því ekki í Evrópukeppni á komandi leiktíð.
Liam Rosenior var rekinn sem stjóri Chelsea fyrir rúmum mánuði og hefur Xabi Alonso verið kynntur sem nýr stjóri liðsins.
Argentíski miðjumaðurinn kom að 22 mörkum í öllum keppnum á tímabilinu.
Hann gekk til liðs við Chelsea frá Benfica í janúar 2023 fyrir 107 milljónir punda. Samningur hans við Chelsea rennur út 2032.
Enzo hefur ekki farið leynt með það að draumurinn sé að spila fyrir Real Madrid. Liam Rosenior setti Enzo í tveggja leikja bann í apríl eftir að hafa daðrað við Real í viðtali.
Þá hefur Man City og PSG einnig haft áhuga á þeim argentínska.

