Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 23:28
Brynjar Ingi Erluson
Filipe Luis í viðræðum við Leverkusen
Mynd: EPA
Brasilíski þjálfarinn Filipe Luis er í viðræðum um að taka við þýska liðinu Bayer Leverkusen.

Sky í Þýskalandi segir að Luis sé líklegastur til að taka við Leverkusen af Kasper Hjulmand sem verður látinn fara á næstu dögum eftir að honum mistókst Leverkusen í Meistaradeildina fyrir næstu leiktíð.

Hjulmand tók við Leverkusen snemma á tímabilinu eftir að Erik ten Hag var rekinn og skrifaði Daninn undir tveggja ára samning.

Sky segir að Luis, sem spilaði 44 A-landsleiki fyrir Brasilíu á leikmannaferli sínum, sé í viðræðum við Leverkusen, en hann hefur verið án starfs síðan í mars.

Luis lagði skóna á hilluna í byrjun árs 2024 og tók við starfinu hjá Flamengo í september sama ár. Hann vann brasilísku deildina og Copa Libertadores á tíma sínum þar.

Andoni Iraola hefur einnig verið orðaður við stöðuna, en hann mun yfirgefa Bournemouth þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.
Slapp
banner
banner