Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Hammarby eru á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni en liðið hefur unnið alla sjö deildarleiki sína á leiktíðinni.
Hammarby vann Eskilstuna, 1-0, á útivelli. Emilie Joramo skoraði eina mark leiksins þegar stundarfjórðungur var etir af leiknum.
Guðrún var á sínum stað í vörn Hammarby sem er eina liðið með fullt hús stiga eftir sjö umferðir.
Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru báðar í byrjunarliði Häcken sem tapaði fyrir AIK, 2-1. Þetta var fyrsta tap Häcken, sem varð sænskur meistari á síðustu leiktið, en liðið er í öðru sæti með 18 stig.
Häcken mætir næst Íslendingaliði Kristianstad á meðan Hammarby spilar við Vittsjö.



