Í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í vikunni voru ýmsar viðurkenningar veittar fyrir tímabilið sem var að klárast í ensku úrvalsdeildinni.
Í þættinum var rætt um það hvað augnablik tímabilsins væri. Þessi augnablik komu til greina:
Declan Rice „þetta er ekki búið" eftir tap á móti Manchester City
Brotið á David Raya gegn West Ham
Guardiola kveður
Salah kveðjustund
Bruno bætir stoðsendingametið
En að lokum er augnablik tímabilsins bara það þegar Arsenal verður meistari í fyrsta sinn í 22 ár eftir að Manchester City mistekst að vinna Bournemouth í næst síðustu umferð deildarinnar.




