Ítalíumeistarar Inter hafa mikinn áhuga á því að fá enska miðjumanninn Curtis Jones frá Liverpool, en þó er eitthvað í að samkomulag náist um leikmanninn. Þetta kemur fram í enskum miðlum í dag.
Samkvæmt helstu miðlum Bretlandseyja er Jones opinn fyrir því að fara frá Liverpool, en félagið vill ekki selja hann á tombóluverði.
Félagið vill fá 26 milljónir punda fyrir Jones en Inter, sem hefur sýnt Jones áhuga síðustu mánuði, er aðeins reiðubúið að borga um 17 milljónir.
Jones byrjaði sextán deildarleiki með Liverpool á tímabilinu og kom inn af bekknum í átján leikjum.
Hann er uppalinn hjá félaginu en ekki náð að festa hlutverk sitt í liðinu.
Ítalskir miðlar segja Jones eitt af aðalskotmörkum Inter fyrir næstu leiktíð, en hann mun halda kyrru fyrir eins og staðan er núna, ekki nema Inter sé reiðubúið að greiða uppsett verð.



