Fylkir vann fimmta deildarleikinn á tímabilinu er liðið hafði betur gegn Leikni, 3-0, í 6. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Nýliðar Ægis unnu sinn fyrsta sigur er liðið lagði ÍR að velli, 4-1.
Lærisveinar Heimis Guðjónssonar líta vel út í byrjun leiktíðar og eru farnir að gera sig gildandi í baráttu um sæti í efstu deild.
Guðmundur Tyrfingsson braut ísinn fyrir Fylkismenn með marki á 41. mínútu. Kári Sigfússon kom með ljúffenga fyrirgjöf inn á Guðmund sem var einn og óvaldaður í teignum, og kom boltanum í netið.
Heimamenn gerðu út um leikinn um miðbik síðari hálfleiks með tveimur mörkum á nokkrum mínútum. Guðfinnur Þór Leósson skoraði er hann hirti frákast eftir hornspyrnu og þá gerði Guðmundur annað mark sitt eftir mistök Ólafs Íshólm Ólafssonar sem reyndi að kýla aukaspyrnu frá en hitti ekki boltann sem datt út á Guðmund sem skoraði.
Ólafur vildi fá brot, en fékk ekki og markið því dæmt gott og gilt.
Sannfærandi hjá Fylki sem er á toppnum með 15 stig eftir sex umferðir en Leiknir í 10. sæti með 6 stig.
Glæstur fyrsti sigur Ægis
Ægir hefur beðið lengi eftir fyrsta deildarsigrinum og var sá afar glæsilegur en liðið vann ÍR, 4-1.
Staðan var markalaus í hálfleik, en síðari hálfleikurinn bauð upp á mikla skemmtun. Jordan Adeyemo og Nikola Kristinn Stojanovic skoruðu með stuttu millibili.
ÍR-ingar fengu vítaspyrnu sem Bergvin Fannar Helgason skoraði úr, en Ægir svaraði um hæl er Atli Rafn Guðbjartsson nýtti sér mistök Vilhelms í markinu.
Adeyemo gerði annað mark sitt undir lok leiks og þar við sat. Ægismenn komnir með fyrsta sigurinn og upp úr botnsætinu, en liðið er nú í næst neðsta sæti með 4 stig á meðan ÍR er í 8. sæti með 7 stig.
Fjórði sigurinn í röð hjá Aftureldingu
Afturelding er á skriði en liðið vann fjórða deildarleikinn í röð er það heimsótti Grindavík á Stakkavíkurvöll.
Joacim Holtan kom Aftureldingu á bragðið á 20. mínútu eftir fjörugar upphafsmínútur og gerði Aron Elí Sævarsson annað markið á lokasekúndum fyrri hálfleiks.
Góð staða hjá Aftureldingu í hálfleik en Grindvíkingar gátu verið svekktir enda spilað frábærlega í leiknum.
Þeir komu sér aftur inn í leikinn með marki Rafaels Victors eftir fyrirgjöf Christians Bjarma Alexanderssonar á 56. mínútu en Óðinn Bjarkason drap vonir heimamanna með þriðja mark Aftureldingar aðeins sex mínútum síðar eftir slaka sendingu Heiðars Snæs Ragnarssonar til baka.
Afturelding gat bætt við fleiri mörkum en sætti sig við þrjú og varð um leið fyrsta liðið til að vinna Grindavík á þessu tímabili. Afturelding er í öðru sæti með 13 stig en Grindavík í 7. sæti með 7 stig.
Endurkomusigur hjá Gróttu
Grótta vann annan leik sinn í röð er það vann Þrótt, 3-2, á AVIS-vellinum í Laugardal.
Þrótturum var spáð efsta sæti Lengjudeildarinnar í ár, en þeim hefur fatast flugið í síðustu leikjum.
Þeir töpuðu á móti Aftureldingu í síðasta leik og gerðu jafntefli við Leikni í umferðinni þar á undan.
Heimamenn byrjuðu leikinn í kvöld frábærlega. Vilhjálmur Kaldal SIgurðsson skoraði með skalla eftir hornspyrnu á 7. mínútu og þá komu þeir boltanum aftur í netið fimm mínútum síðar en markið var dæmt af vegna brots á Guðmundi Rafni í markinu.
Andri Freyr Jónasson jafnaði fyrir Gróttu á 25. mínútu eftir gott samspil en Örn Bragi Hinriksson svaraði í næstu sókn Þróttara og aftur eftir hornspyrnu. Hornið var tekið stutt, Grótta kom boltanum frá en þó ekki lengra en á Vilhjálm sem keyrði út að endalínu og setti boltann á Örn Braga sem skoraði.
Flottur fyrri hálfleikur, en í þeim síðari komu gestirnir til baka og tóku öll stigin með sér á nesið.
Andri Freyr jafnaði aftur en hafði heppnina svolítið með sér. Dagur Bjarkason átti skot sem fór af Andra og í netið.
Þróttarar fengu þrjú dauðafæri þegar hálftími var til leiksloka og eiginlega ótrúlegt að boltinn hafi ekki sungið í netinu. Vilhjálmur, Brynjar Gautur Harðarson og Kári Kristjánsson allir í hörkufærum en boltinn vildi ekki inn.
Grótta nýtti sér þetta klúður sér til fulls með sigurmarki stundarfjórðungi fyrir leikslok. Það gerði Mattias Kjeld með hörkuskoti eftir undirbúning Tristans Freys Ingólfssonar.
Sigur Gróttu staðreynd sem er nú komin með tvo sigra í röð og er í 5. sæti með 9 stig en Þróttur í 4. sæti með 10 stig.
Þróttur R. 2 - 3 Grótta
1-0 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('7 )
1-1 Andri Freyr Jónasson ('25 )
2-1 Örn Bragi Hinriksson ('27 )
2-2 Andri Freyr Jónasson ('48 )
2-3 Mattías Kjeld ('76 )
Lestu um leikinn
Fylkir 3 - 0 Leiknir R.
1-0 Guðmundur Tyrfingsson ('41 )
2-0 Guðfinnur Þór Leósson ('68 )
3-0 Guðmundur Tyrfingsson ('70 )
Lestu um leikinn
Ægir 4 - 1 ÍR
1-0 Jordan Adeyemo ('52 )
2-0 Nikola Kristinn Stojanovic ('55 )
2-1 Bergvin Fannar Helgason ('71 , víti)
3-1 Atli Rafn Guðbjartsson ('75 )
4-1 Jordan Adeyemo ('94 )
Lestu um leikinn
Grindavík 1 - 3 Afturelding
0-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('20 )
0-2 Aron Elí Sævarsson ('45 )
1-2 Rafael Alexandre Romao Victor ('56 )
1-3 Óðinn Bjarkason ('62 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Fylkir | 6 | 5 | 0 | 1 | 11 - 3 | +8 | 15 |
| 2. Afturelding | 6 | 4 | 1 | 1 | 17 - 12 | +5 | 13 |
| 3. HK | 6 | 4 | 0 | 2 | 13 - 9 | +4 | 12 |
| 4. Þróttur R. | 6 | 3 | 1 | 2 | 14 - 9 | +5 | 10 |
| 5. Grótta | 6 | 3 | 0 | 3 | 12 - 14 | -2 | 9 |
| 6. Njarðvík | 6 | 2 | 2 | 2 | 5 - 4 | +1 | 8 |
| 7. Grindavík | 6 | 1 | 4 | 1 | 7 - 7 | 0 | 7 |
| 8. ÍR | 6 | 2 | 1 | 3 | 15 - 16 | -1 | 7 |
| 9. Vestri | 6 | 2 | 1 | 3 | 10 - 15 | -5 | 7 |
| 10. Leiknir R. | 6 | 1 | 3 | 2 | 4 - 9 | -5 | 6 |
| 11. Ægir | 6 | 1 | 1 | 4 | 6 - 9 | -3 | 4 |
| 12. Völsungur | 6 | 0 | 2 | 4 | 2 - 9 | -7 | 2 |



