Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 08:30
Kári Snorrason
Liverpool fylgist með bráðefnilegum Þjóðverja
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Arne Slot, stjóri Liverpool.
Mynd: EPA
Liverpool eru meðal nokkurra stórliða sem fylgjast náið með framgöngu ungstirnisins Kennet Eichhorn hjá Hertha Berlin.

Eichhorn, sem er aðeins 16 ára gamall, braust inn í aðallið Hertha á þessu tímabili og lék 17 leiki í 2. Bundesliga þar sem hann skoraði eitt mark. Hann bætti einnig við marki í þýsku bikarkeppninni.

Liverpool gæti þó ekki skráð leikmanninn formlega fyrr en hann verður 18 ára í júlí 2028, en félagið gæti þó gert samning fyrirfram sem tæki gildi síðar.

Hann er sagður á radarnum hjá fleiri toppliðum í Evrópu og gæti jafnvel farið til félags innan Evrópusambandsins í sumar og spilað strax þar.


Slapp
banner
banner
banner