Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 23:42
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool vill róa ósáttan Alisson með nýjum samningi
Mynd: EPA
Enski blaðamaðurinn Graeme O'Bailey segir að Liverpool sé að íhuga að bjóða brasilíska markverðinum Alisson Becker nýjan samning.

Alisson, sem er 33 ára gamall, hefur verið orðaður við ítalska félagið Juventus á síðustu vikum.

Samkvæmt ítölsku miðlunum er Juventus reiðubúið að bjóða honum tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu, en Liverpool er ekki tilbúið að leyfa honum að fara í sumar.

O'Bailey segir að Alisson sé ósáttur við ákvörðun stjórnarinnar og að hann ætli sér að funda með henni til þess að fá framtíðina á hreint.

Hann tekur einnig fram að Liverpool sé opið fyrir því að bjóða Alisson, sem hefur verið einn besti markvörður heims síðustu ára, nýjan samning, enda er hann í miklum metum hjá félaginu.

Samningur Alisson átti að renna út í sumar en Liverpool ákvað að virkja ákvæði sem framlengdi hann út næsta tímabil.

Ástæðan fyrir því að Liverpool er ekki reiðubúið að leyfa Alisson að fara er áhyggjur varðandi markvarðarstöðuna. Georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili, sem er ætlað að taka við keflinu af Alisson, var ekki sannfærandi í fjarveru Brasilíumannsins á tímabilinu.

Mamardashvili fékk á sig átján mörk í tíu deildarleikjum með Liverpool á tímabilinu og hélt hreinu í aðeins tveimur leikjum.
Slapp
banner
banner