Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
   mið 27. maí 2026 22:36
Viktor Ingi Valgarðsson
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Lengjudeildin
Nenad Zivanovic þjálfari Ægis
Nenad Zivanovic þjálfari Ægis
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Á GeoSalmo Vellinum í Þorlákshöfn fór fram leikur Ægir og ÍR. Leikurinn var hluti af 6.umferð Lengjudeildarinnar. Heimamenn í Ægir sóttu sinn fyrsta sigur í mótinu 4-1 og öll mörkin skoruð í seinni hálfleik.

Nenad Zivanovic var að sjálfsögðu sáttur með fyrsta sigurinn eftir leik.


Lestu um leikinn: Ægir 4 -  1 ÍR

„Þvílíkur léttir, við loksins brutum ísinn. Þetta er búið að vera eins og töfrasirkús fyrir leikmennina. Ég held að eftir þennan sigur verður allt auðveldara." 

„Við áttum þennan sigur mjög skilið. Börðumst allstaðar á vellinum, taktískt mjög flottir, gáfum ÍR ekki mikið og nýttum okkar færi."

Eftir mjög bragðdaufan fyrri hálfleik, mættu Ægismenn heldur betur vel stemdir út í seinni hálfleik með tveimur mörkum á fyrstu tíu mínútum leiksins.

„Ég breytti ekki miklu, bara aðeins hvernig við vörðumst. Ég bað bara um meiri ákefð og eins og alltaf að vera meira hugrakkir. Fótbolti er bara leikur, farðu út og njóttu, sigurinn er þarna en þú þarft að eiga hann skilinn."

Framundan hjá Ægir er ferðalag til Húsavíkur og leikur gegn Völsungi næst komandi Sunnudag.

„Húsavík er mjög sérstakur bær, allir hæfileikarnir sem þeir hafa gefið til Íslenska fótboltans. Hef spilað og þjálfað þarna og það er aldrei auðvelt. Þeir eiga í erfiðleikum með marga hluti eins og fjarlægð þjálfara og að geta ekki spilað Lengjubikarinn. Mér finnst þeir gott lið og þetta verður erfitt en við ætlum að gera okkar besta."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner