Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 09:30
Kári Snorrason
Rice í molum
Mynd: EPA
Declan Rice, miðjumaður Arsenal, er sár og svekktur eftir að hans gamla félag, West Ham United, féll úr ensku úrvalsdeildinni.

Rice, sem er fyrrverandi fyrirliði West Ham, birti skilaboð á Instagram þar sem hann lýsti djúpri tengingu við félagið og þakkaði fyrir allt sem það gerði fyrir feril hans.

„Ég er algjörlega niðurbrotinn yfir að sjá West Ham falla. Félag sem skiptir mig miklu máli,“ skrifaði Rice. Hann bætti við að hann væri sannfærður um að liðið myndi snúa fljótt aftur upp í efstu deild og að hann muni halda áfram að styðja félagið.

West Ham féll á lokadegi tímabilsins á sama tíma og Arsenal fagnaði Englandsmeistaratitlinum.


Slapp
banner
banner