Skoski bakvörðurinn Andy Robertson er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Hotspur. Þetta fullyrðir ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano á X.
Robertson spilaði kveðjuleik sinn með Liverpool um helgina eftir að hafa eytt níu árum hjá félaginu.
Hann var nálægt því að fara til Tottenham í janúarglugganum en ákvað að klára tímabilið með þeim rauðu.
Skotinn hélt því áfram opnu að fara til Tottenham en beið með ákvörðun sína til að sjá hvort liðið myndi halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.
Romano segir nú að Robertson hafi náð munnlegu samkomulagi um að ganga í raðir Tottenham þegar samningur hans við Liverpool rennur út í næsta mánuði.
Ítalska stórliðið Juventus reyndi að sannfæra Robertson um að koma á síðustu sólarhringum, en Romano fullyrðir að hann muni efna loforð sitt við Tottenham.
???? EXCL: Tottenham reach verbal agreement to sign Andy Robertson, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 27, 2026
Pact expected to be respected and deal to be signed soon despite Juventus proposal to try hijack the deal.
Robertson, wanted by #THFC last January and again now with De Zerbi.
It’s happening. ????????????????????????????? pic.twitter.com/62vY9Y3AUL



