Fotbolti.net
27.05.26 - 20:51
Brynjar Ingi Erluson

Setja 20 milljóna punda verðmiða á Jesus

Setja 20 milljóna punda verðmiða á Jesus
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal hafa sett 20 milljóna punda verðmiða á brasilíska framherjann Gabriel Jesus. Þetta segir hinn afar virti David Ornstein hjá Athletic.
Jesus hefur ekki verið fastamaður í liði Arsenal síðasta eina og hálfa árið og þá aðallega vegna meiðsla á hné.

Arsenal ákvað að bregðast við því með því að kaupa Viktor Gyökeres frá Sporting á síðasta ári og þá hefur Kai Havertz einnig verið á undan Jesus í goggunarröðinni.

Jesus, sem er 29 ára gamall, á ár eftir af samningnum og segir Athletic að Arsenal sé reiðubúið að selja hann í sumar fyrir 20 milljónir punda.

Fjölmörg félög hafa spurst fyrir um Jesus sem kom til Arsenal frá Manchester City fyrir fjórum árum.

Hann skoraði sex mörk í 27 leikjum á þessu tímabili, þar á meðal í 2-1 sigrinum á Crystal Palace í lokaumferð deildarinnar um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.