Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Mateta kom Palace yfir í úrslitaleiknum
Mateta skoraði markið í byrjun síðari hálfleiks
Mateta skoraði markið í byrjun síðari hálfleiks
Mynd: EPA
Crystal Palace færist nær fyrsta Evróputitlinum í sögu félagsins eftir að Jean-Philippe Mateta kom liðinu yfir gegn Rayo Vallecano í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Frakkinn kom Palace yfir á 51. mínútu leiksins með skoti af stuttu færi.

Adam Wharton átti hörkuskot sem markvörður Rayo varði út á Mateta sem var fljótur að átta sig og skilaði boltanum í autt netið.

Palace náði sögulegum árangri með því að komast í deildarkeppni í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins og getur haldið áfram að skrifa söguna ef liðið nær í sigur í kvöld.

Það myndi ekki bara færa Palace fyrsta Evróputitilinn heldur líka tryggja sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Mateta
Slapp
banner
banner