Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 17:30
Kári Snorrason
Sveindís dettur út úr hópnum - Ása kemur inn
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi landsleikjum gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM.

Sveindís hefur verið að glíma við meiðsli en var valin í upprunalega hópinn. Það er núna hins vegar ljóst að hún getur ekki tekið þátt í verkefninu.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir hefur verið valin í hennar stað en hún á því möguleika að spila sína fyrstu landsleiki.

Þetta er í fyrsta sinn sem Ása er valin í A-landsliðið en hún á að baki 43 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur skorað í þeim tíu mörk.

Ása hefur spilað vel með Blikum á tímabilinu, þrjár eru markahæstar í deildinni eftir sex umferðir með fjögur mörk hver og er hún ein þeirra.

Ísland mætir Úkraínu í Póllandi þann 5. júní næstkomandi og svo Spáni hér heima nokkrum dögum síðar.


Slapp
banner
banner