Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
Telma Steindórs: Við höfum getað gert miklu betur
Ian Jeffs: Þetta var ekki alveg sanngjarnt
   mið 27. maí 2026 22:27
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Eðlilega mjög svekktur að fá núll stig úr þessum leik" sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar eftir 2-3 tap á heimavelli gegn Gróttu.

Venni var ekki ósáttur með frammistöðuna í dag.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 -  3 Grótta

„Að mörgu leyti fín. Stöðurnar sem við sköpuðum okkur, færin sem við búum til eiga að vera nægilega mörg til þess að vinna þennan leik. En við fáum á okkur þrjú mörk, maður getur ekki endalaust talað um óheppni eða óréttlæti. Þetta var ekki nógu gott hjá okkur."

Voru þið betri í fyrri hálfleik en seinni hálfleik?

„Nei. Þeir byrja seinni hálfleikinn að jafna leikinn með skot sem fer í varnarmann og inn. Í kjölfarið erum við að mínu mati einráður á vellinum og látum það ekki telja. Það er kafli þarna tuttugu mínútur í seinni hálfleik þar sem við vöðum í færum og erum bara steinhissa að boltinn fari ekki inn og allt þetta. In the end er þetta ekki nógu vel gert, þetta þarf að enda í netinu. Svo taka þeir eitt upphlaup og skora úr því. Það er ekkert annað en okkar klúður."

Venni fannst mörkin sem Þróttur fékk á sig vera of auðveld.

„Já, ég meina fyrsta markið er auðvitað vel spilað hjá Gróttu, en bara allt of auðvelt fyrir þá að komast í gegnum vörnina hjá okkur. Þetta er aðeins of auðvelt fyrir þá finnst mér að skora þessi mörk. Við komum tvisvar yfir og eigum að geta skellt í lás og sært þá með því að hægelda þá."

Venni hefur ekki áhyggjur þrátt fyrir að Þróttur hefur fengið eitt stig í síðustu þremur deildarleikjum.

„Markmiðið var að vinna hérna og fá þrjú stig, endum með núll. Ég hefði meiri áhyggjur auðvitað ef við værum ekki að skapa okkur nein færi og andstæðingurinn væri að vinna okkur sanngjarnt. Ekki eins og þetta var ósanngjarn sigur. Við erum að skapa okkur þær stöður sem okkur langar í og færi og krossa og fimmtán horn. En ég hefði mögulega áhyggjur ef við værum hreinlega að spila illa. En hafandi sagt það þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir, það er ekki svoleiðis."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner