„Mjög erfiður útivöllur á móti frábæru liði. Við erum mjög ánægðir með þennan sigur og þessa frammistöðu í kvöld" sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu eftir 2-3 úti sigur gegn Þrótti.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 3 Grótta
Hvernig fannst þér leikurinn spilast í kvöld?
„Alveg eins og við reiknuðum með. Við vörðumst vel, bæði í hápressuni og þegar við lágum aftarlega. Leikurinn spilast fínt, ég meina þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum, sem við vorum að gefa þeim. Það var ekki alveg nógu gott, við komum inn í hálfleik frekar súrir með það. En síðan erum við bara í toppstandi og góðu formi, við höldum áfram þangað til að við klárum þetta. Við erum bara mjög ánægðir með þessi úrslit í sjálfum sér. Jú jú við skorum þriðja markið þegar þeir lágu á okkur og það er helvíti gott og sætt að fá það mark í netið."
Þrátt fyrir að Þróttur liggur á ykkur, þið gátu samt haldið haus?
„Þeir fá full mikið af hornum og svona, þeir gera það helvíti vel, þeir eru öflugir í því. En við náðum að verja því vel í seinni hálfleik, en það munaði oft mjóu að þeir hefðu skorað. En við náðum að verjast því og náðum að jafna leikinn og vinna síðan leikinn. Það var bara ótrúlega sætt og frábær frammistaða hjá mínum mönnum, mjög stoltur af þeim."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan























