Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 23:20
Brynjar Ingi Erluson
Vill fara frá Chelsea
Mynd: EPA
Danski markvörðurinn Filip Jörgensen vill yfirgefa Chelsea í sumarglugganum. Þetta kemur fram á Sky Sports.

Jörgensen gekk til liðs við Chelsea frá Villarreal fyrir 20,7 milljónir punda árið 2024.

Hann hefur verið varamarkvörður fyrir Robert Sanchez síðustu tvö árin og aðeins spilað ellefu deildarleiki.

Þessi 24 ára gamli danski landsliðsmaður hefur nú tjáð félaginu að hann vilji fara í sumar.

Mörg félög höfðu áhuga á að fá hann í janúarglugganum en Chelsea vildi ekki leyfa honum að fara. Nú er félagið hins vegar opið fyrir því að selja hann þar sem það þarf ekki markvörð í stað hans.

Belgíski markvörðurinn Mike Penders snýr aftur til Chelsea í sumar eftir að hafa eytt síðustu leiktíð á láni hjá Strasbourg í Frakklandi.

Chelsea bindur miklar vonir við Penders, sem með frammistöðu sinni, tryggði sér sæti í belgíska landsliðshópinn fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í næsta mánuði.
Slapp