Fotbolti.net
28.07.26 - 21:48
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeild kvenna: Ótrúlegt að Haukar hafi ekki skorað

Lengjudeild kvenna: Ótrúlegt að Haukar hafi ekki skorað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Haukar 0 - 0 ÍA
Lestu um leikinn: Haukar 0 - 0 ÍA
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í liði Hauka tóku á móti ÍA í eina leik kvöldsins í Lengjudeild kvenna og voru heimakonur sterkari aðilinn.

Haukar sköpuðu góð færi og áttu meðal annars skot í stöng en tókst ekki að skora fyrir leikhlé.

Skagakonur byrjuðu seinni hálfleikinn betur og fengu færi til að skora en Haukar náðu fljótt tökunum aftur á leiknum og sköpuðu sér góð færi, án þess þó að skora.

Haukar fengu urmul færa á lokakaflanum og skutu bæði í stöng og slá, en boltinn rataði ekki inn. Skagakonur geta prísað sig sælar að fara heim með stig úr Hafnarfirðinum.

Slæmt gengi Hauka heldur því áfram en liðið er í þriðja sæti Lengjudeildarinnar með 18 stig eftir 11 umferðir, þremur stigum fyrir ofan ÍA. Það eru liðnir tveir mánuðir síðan Haukar unnu síðast deildarleik.
Lengjudeild kvenna: Ótrúlegt að Haukar hafi ekki skorað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.