Útlit er fyrir að Marco Silva, stjóri Fulham á Englandi, sé á heimleið en hann er sagður vera með munnlegt samkomulag um að taka við Benfica.
Silva er að renna út á samningi hjá Fulham og ekkert sem bendir til þess að hann framlengi við Lundúnafélagið.
talkSPORT er með heimildir fyrir því að hann yfirgefi Fulham á næstu dögum og sé að taka við Benfica í heimalandinu.
Jose Mourinho, þjálfari Benfica, hefur samþykkt að taka aftur við Real Madrid á Spáni og er því þjálfarstóllinn hjá Benfica laus. Ef marka má fréttirnar verður hann ekki laus lengi.
Benfica á að hafa náð munnlegu samkomulagi við Silva og það þrátt fyrir að hafa boðið stjóranum töluvert lægri laun.
Fulham bauð Silva þriggja ára samning með átta milljónir punda í árslaun á meðan Benfica bauð honum fjórar milljónir punda.
Silva er að byggja hús í Lissabon og sagður ólmur að snúa aftur heim.


