Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 27. júní 2021 10:00
Victor Pálsson
Tvöfaldar launin í Manchester - Man City skoðar leikmann Chelsea
Powerade
Mynd: Getty Images
Það vantar ekki upp á sunnudagsslúðrið í dag en rætt er um ýmsa leikmenn og þar á meðal nokkrar stórstjörnur.

Leikmenn á borð við Kylian Mbappe, Romelu Lukaku og Jadon Sancho koma fyrir í þessum slúðurpakka sem er í boði BBC.



Liverpool hefur spurst fyrir um framherjann Kylian Mbappe hjá Paris Saint-Germain sem verður samningslaus sumarið 2022. (Marca)

Romelu Lukaku, leikmaður Inter Milan, hefur nánast útilokað endurkomu í ensku úrvalsdeildina þar sem hann lék með Chelsea, West Brom, Everton og Manchester United. (Mirror)

Jadon Sancho mun fá 250 þúsund pund í vikulaun ef hann gengur í raðir Manchester United frá Borussia Dortmund í sumar. Það myndi meira en tvöfalda laun Sancho hjá Borussia Dortmund. (Star)

Dortmund er að skoða Donyell Malen, leikmann PSV Eindhoven, sem mögulegan eftirmann Sancho. (Mirror)

Reece James, leikmaður Chelsea, er á óskalista Manchester City en Pep Guardiola er aðdáandi bakvarðarins sem er 21 árs gamall. (Athletic)

Aston Villa er tilbúið að láta reyna á Chelsea með 40 milljóna punda tilboði í framherjann Tammy Abraham sem skoraði 26 mörk í 40 leikjum fyrir Villa 2018-2019. (Mirror)

Ajax hefur áhuga á að kaupa Steven Bergwijn, leikmann Tottenham, en enska liðið hefur ekki mikinn áhuga á að selja. (Mail)

Carlo Ancelotti, nýr stjóri Real Madrid, vill sjá félagið reyna við Diogo Dalot, leikmann Manchester United, sem spilaði fyrir AC Milan á láni á síðustu leiktíð. (Sempre Milan)

Leeds, West Ham og Southampton eru öll að skoða Junior Firpo, bakvörð Barcelona, sem vill yfirgefa Nou Camp. (Mundo Deportivo)

Barcelona mun leita til Chelsea ef Firpo fer en þar vill félagið semja við þrítugan Marcos Alonso sem má yfirgefa enska liðið. (Mundo Deportivo)

Burnley er reiðubúið að hlusta á tilboð í varnarmanninn James Tarkowski í sumar en West Ham er talið hafa áhuga. (Football Insider)
Athugasemdir
banner
banner
banner