Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 27. júní 2022 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal að bjóða 40 milljónir fyrir Martínez
Mynd: Getty Images

Sky Sports greinir frá því að Arsenal er enn í viðræðum við Ajax um kaup á argentínska varnarmanninum Lisandro Martínez.


Ajax vill fá 50 milljónir evra fyrir Martínez og er Arsenal tilbúið til að borga 40 milljónir.
Martínez er miðvörður að upplagi en hann getur einnig spilað í vinstri bakverði. Hann er 24 ára gamall og hefur spilað sjö landsleiki fyrir Argentínu.
Manchester United hefur einnig áhuga á Martínez sem á 120 leiki að baki fyrir Ajax, undir stjórn Erik ten Hag.

Athugasemdir
banner
banner
banner