Fékk skúbbið á átjánda heimsmeistaramótinu - „Ber svo mikla virðingu fyrir þér“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski blaðamaðurinn Macaya Marquez er að fjalla um átjánda heimsmeistaramótið og fékk upplýsingar sem enginn annar hefði fengið.
Marquez er 91 árs gamall og hefur farið í gegnum hæðir og lægðir á löngum ferli sínum við að fjalla um argentínska landsliðið.
Hann ólst upp með Real Madrid-goðsögninni Alfredo Di Stefano og var boðið í brúðkaup Diego Maradona árið 1989.
Marquez hefur séð allar stærstu stjörnur í sögu fótboltans með eigin augum. Auk Maradona og Di Stefano sá hann meðal annars Pele, Johan Cruyff og fleiri goðsagnir spila.
Marquez fór á sitt fyrsta heimsmeistaramót sem lýsandi árið 1958 og er nú á sínu átjánda HM.
Á blaðamannafundi Argentínu spurði hann Lionel Scaloni, þjálfara liðsins, hvort Lionel Messi myndi byrja leikinn gegn Jórdaníu í lokaumferð riðlakeppninnar. Scaloni svaraði spurningunni hreinskilnislega.
„Ég myndi aldrei svara neinum blaðamanni þessari spurningu núna, en þar sem hún kemur frá þér þá skal ég svara: Messi mun ekki byrja.
Ég ber svo mikla virðingu fyrir þér og er stoltur af því að sjá þig hér,“ sagði Scaloni við Marquez.
Leikur Argentínu og Jórdaníu hefst klukkan 02:00 en Argentínumenn hafa þegar tryggt sér toppsæti J-riðils.

"¿Si juega Messi mañana? Le contesto SOLO PORQUE ES USTED y creo que se lo merece: Leo va a ir al banco.
— Ataque Futbolero (@AtaqueFutbolero) June 26, 2026
Muchas gracias por preguntar, que disfrute el Mundial".
De Scaloni para el gran Enrique Macaya Márquez. ????????????pic.twitter.com/QSm0oFukwb