Fotbolti.net
27.07.17 - 19:56
Magnús Már Einarsson

Kaj Leó: Sá hann sekúndubroti áður en ég skaut

Auglýsing
Kaj Leó í Bartalsstovu.

Kaj Leó í Bartalsstovu.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Borgun
„Þetta er frábær tilfinning. Að vinna Stjörnuna á útivelli er ísinn ofan á kökuna,\" sagði Kaj Leó í Bartalsstovu eftir 2-1 sigur ÍBV á Stjörnunni í undanúrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.

Kaj Leó átti stóran þátt í fyrra markinu og hann skoraði síðan sjálfur sigurmarkið. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var við hlið hans inni á teignum en Kaj Leó ákvað að láta sjálfur vaða með góðum árangri.

„Ég sá hann sekúndubroti áður en ég skaut. Ég var búinn að ákveða að láta vaða á markið. Ég hitti hann fullkomlega út við fjærtstöngina,\" sagði Kaj Leó um markið.
Bikarúrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 12. ágúst. Má búast við að Færeyingar mæti á leikinn að hvetja Kaj Leó?

„Það koma 150 áhorfendur úr heimabæ mínum á leik í september. Ég veit samt ekki hvort einhver komi á úrslitalekinn. Vonandi koma nokkrir,\" sagði Kaj Leó.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.