Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   þri 27. júlí 2021 17:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea að ná sér í markvörð
Chelsea er að ganga frá samningi á Marcus Bettinelli, fyrrum markverði Fulham. Það er The Athletic sem segir frá þessu.

Hann verður fyrsti leikmaðurinn sem Chelsea fær til sín í sumar.

Hinn 29 ára gamli Bettinelli kemur til með að vera þriðji markvörður Chelsea á tímabilinu.

Hann fyllir í skarðið sem Willy Caballero skilur eftir sig. Samningur Caballero rann út um mánaðarmótin síðustu. Hann er 39 ára markvörður sem lék ellefu deildarleiki með Chelsea á tímabilunum fjórum. Hann kom til félagsins frá Manchester City og hefur einnig leikið með Boca Juniors, Elche, Arsenal Sarandi og Malaga.

Samningur Bettinelli við Fulham rann út eftir síðasta tímabil. Chelsea hefur lengi fylgst með Bettinelli og reyndu þeir að kaupa hann 2017. Núna er Lundúnaliðið loksins að landa sínum manni.
Slapp
banner
banner