Óli Stefán: Viljum verða kröftugt og gott Pepsi-deildarlið
Auglýsing

Óli Stefán var svekktur með jafnteflið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Stefán var svekktur með jafnteflið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur var svekktur með jafntefli sinna manna og KR í dag. Leikurinn fór 2-2 en Grindvíkingar voru yfir í leiknum eftir 80. mínútur en þá jafnaði Guðmundur Andri Tryggvason.
<i>„Ég er bara pínulítið svekktur úr því að við vorum að leiða leikinn. Mér fannst við kasta því of fljótt frá okkur og of auðveldlega. Það er þannig í þessari deild að þegar þú gerir lítil mistök þá er þér refsað og okkur var refsað gegn mjög góðu KR liðið. En heilt yfir var ég ánægður með leik minna manna,“</i> sagði Óli Stefán.
Grindvíkingar eru nýliðar í Pepsi-deildinni en þeir hafa verið virkilega öflugir í sumar og eru í Evrópubaráttu. Óli Stefán er ánægður með hversu langt lið sitt er komið.
<i>„Það er akkúrat það sem ég er að segja við strákana fyrir leik. Á einu og hálfu ári erum við komnir ansi langt og það markmið að staðsetja liðið vel í Pepsi-deildina er langt komið. Við viljum halda áfram að bæta okkar leik og verða betri og verða bara kröftugt og gott Pepsi-deildar lið. Á þessu eina og hálfa ári sem við Jankó og Steini höfum verið hérna þá finnst mér við vera komnir ansi langt með það. En auðvitað hellings vinna framundan.“</i>
Varnarleikur Grindavíkur var öflugur í upphafi móts en í síðustu leikjum hefur liðið fengi ansi mörg mörk á sig.
<i>Það er klárlega stór þáttur í þessari breytu á velgengni í fyrri umferð og svo kannski það að vera ekki að taka sigrana. Ég get ekki sagt varnarleikur varnarlínunnar heldur varnarleikur liðsins. Við erum að fá of auðveld mörk á okkur og ef við gerum mistök þá virðist okkur alltaf vera refsað fyrir það. Það hjálpar ekki að við erum langt komnir inn í mótið og ég hef ekki enn náð að stilla sömu þremur hafsentum tvo leiki í röð. Það er erfitt að ná stöðugleika í varnarleiknum ef þú ert alltaf að hreyfa til í línunni.“</i>
Rodrigo Gomes Mateo spilaði í dag sinn fyrsta leik fyrir Grindavík í sumar en hann var einn lykilmanna liðsins á síðasta tímabili þegar Grindavík komst upp úr Inkasso-deildinni. Hann hefur verið meiddur í allt sumar.
<i>„Að mínu mati er Rodri einn af bestu leikmönnum í þessari deild. Það er algjör synd fyrir hann að ná ekki að spila. Þetta er fyrsti leikurinn hans í þessari deild og ég fagna því gríðarlega að fá hann til baka.“</i>