Rúnar Páll: Mikil virðing en samt engin helvítis virðing
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
<i>„Það var fínt að jafna í lokin en við áttum að vinna þennan leik. Við vorum miklu betri aðilinn. Það var bara eitt lið á vellinum. Þeir fá tvær hornspyrnur í fyrri hálfleik en meira fá þeir ekki í þessum leik,\"</i> sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 1-1 jafnteflið gegn FH í kvöld.
<i>„Ég er mjög ánægður með spilamennskuna í dag. Við sýndum að við erum hrikalega öflugir og ef við höldum svona áfram út september þá verð ég sáttur.\"

Mikil læti brutust út eftir leik og aðstoðarþjálfarar Stjörnunnar, Brynjar BJörn Gunnarsson og Davíð Snorri Jónasson fengu báðir rauða spjaldið sem og Pétur Viðarsson varnarmaður FH
„Ég verð einn á bekknum næst. Það er helvíti flott,\" sagði Rúnar Páll og hló en hann vissi lítið um það af hverju lætin byrjuðu.
„Ég get ekkert sagt um það. Ég lenti í hringiðu þarna og veit ekkert hvað gerðist. Það virtust allir vera pirraðir á öllum. Þeir voru pirraðir á að við skoruðum þetta mark, við vorum pirraðir að fá ekki víti og það var hiti í þessu. Ég veit ekki um hvað þetta snerist.\"
„Það er oft hiti í þessum liðum og þetta eru harðir andstæðingar. Það er mikil virðing en samt engin helvítis virðing.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.