Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 27. ágúst 2020 17:00
Fótbolti.net
Lið 11. umferðar: Fimm frá Selfossi
Dagný Brynjarsdóttir er í liði umferðarinnar.
Dagný Brynjarsdóttir er í liði umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andrea Mist Pálsdóttir
Andrea Mist Pálsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Það voru stór tíðindi í 11. umferðinni í Pepsi Max-deild kvenna en Breiðablik fékk á sig fyrsta markið í sumar og tapaði 2-1 gegn Selfyssingum á heimavelli. Selfoss á fimm leikmenn í liði umferðarinnar sem og þjálfara umferðarinnar, Alfreð Elías Jóhannsson.

Barbára Sól Gísladóttir skoraði sigurmark Selfyssinga og var maður leiksins. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir var einnig öflug í vörninni og Kaylan Marckese varði vel í markinu. Á miðjunni áttu Dagný Brynjarsdóttir og Karitas Tómasdóttir góðan dag.

Gott gengi ÍBV heldur áfram en liðið lagði Þór/KA 1-0 þar sem Olga Sevcova og Karlina Miksone voru bestu menn vallarins.

Elín Metta Jensen og Arna Eiríksdóttir skoruðu báðar í sigri Vals á Þrótti.

Phoenetia Browne átti stórleik í fremstu víglínu FH í sigri á Stjörnunni en þar spilaði Andrea Mist Pálsdóttir einnig vel.

Sjá einnig:
Lið 1. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 10. umferðar
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner