Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. ágúst 2022 23:31
Brynjar Ingi Erluson
Elliott brast í grát í viðtali eftir leik - „Þetta mark var fyrir hana"
Harvey Elliott
Harvey Elliott
Mynd: Getty Images
Harvey Elliott, leikmaður Liverpool á Englandi, skoraði eitt af mörkum liðsins í 9-0 stórsigri á Bournemouth á Anfield í dag en þetta var afar sérstakt mark fyrir hann og hans fjölskyldu.

Elliott skoraði fyrsta deildarmark sitt á Anfield fyrir Liverpool í dag en hann gerði annað markið í sigrinum.

Það var stórkostlegt með föstu skoti rétt fyrir utan teig en eftir leik fór hann í viðtal og var það afar tilfinningaþrungið.

Elliott missti ömmu sína á dögunum og vildi hann tileinka henni markið en tárin streymdu niður kinnar hans meðan hann ræddi við sjónvarpsstöð Liverpool.

„Amma mín lést fyrir nokkrum dögum. Þetta mark var fyrir hana og svo var auðvitað mikilvægt að ná í stigin þrjú," sagði Elliott áður en hann brast í grát en viðtalið má sjá hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner