Fotbolti.net
27.08.26 - 21:42
Brynjar Ingi Erluson

Alonso um framtíð Enzo: Við erum undirbúnir

Xabi Alonso, stjóri Chelsea

Xabi Alonso, stjóri Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, segist sjálfur hafa tekið ákvörðun um að halda Enzo Fernandez utan hóps í 2-0 sigri gegn Luton í deildabikarnum í kvöld.
Enski deildabikarinn: Chelsea gerði nóg gegn Luton - Mætir Leeds
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: Chelsea gerði nóg gegn Luton - Mætir Leeds

Alonso sagði í gær að Enzo Fernandez væri klár í slaginn og því kom það verulega á óvart þegar nafn hans var hvergi að finna á leikskýrslunni í kvöld.

„Ég tók þessa ákvörðun og félagið var sammála henni. Maður veit þó aldrei hvað gerist í fótboltanum. Óvæntir hlutir geta gerst og leikmenn farið á milli félaga, þannig að við þurfum að vera tilbúnir. Við erum þolinmóðir og undirbúnir,“ sagði Alonso um fjarveru Enzo.

Talið er líklegt að Enzo sé á leið til Manchester City. Ben Jacobs segir viðræður félaganna vera í gangi og góðar líkur á að samkomulag náist.

Alonso vildi lítið ræða framtíð Argentínumannsins og kaus frekar að einbeita sér að frammistöðunni gegn Luton og leikmannahópnum í heild.

„Við þurftum að sýna þolinmæði. Ég verð að hrósa Luton sem varðist af miklum krafti. Þeir voru þéttir til baka og gerðu okkur mjög erfitt fyrir. Í hálfleik töluðum við um að halda áfram og vera þolinmóðir. Við skoruðum svo snemma í síðari hálfleik og það hjálpaði okkur auðvitað mikið.

„Við viljum hafa vel samsettan hóp á öllum sviðum. Þar horfum við til gæða, þroska og persónuleika, auk þess að finna rétta jafnvægið á milli yngri og reynslumeiri leikmanna. Það er mikilvægt að þeir ungu fái aðstoð við að þroskast og þar gegna þeir reynslumeiri mikilvægu hlutverki.

„Ég er ánægður með viðhorfið og orkuna í leikmönnunum. Stuðningsmennirnir voru líka frábærir og við þurfum svo sannarlega á þeim að halda í allan vetur. Nú fáum við hvíld áður en við mætum aftur hingað á sunnudag,“ sagði Spánverjinn.

Argentínski markvörðurinn Emiliano Martínez er sagður á leið til Chelsea frá Aston Villa en Alonso neitaði að ræða málið enda félagaskiptin ekki endanlega frágengin.

„Það er alltaf mikið um orðróma yfir sumartímann og mikið rætt um leikmenn. Ég vil hins vegar ekki tala um leikmenn sem eru ekki hluti af mínu liði,“ sagði Alonso.
Enzo er líklega á förum

Enzo er líklega á förum

Canon

Mynd: EPA

Emi Martínez er á leið til Chelsea

Emi Martínez er á leið til Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.