27.08.26 - 18:27
Brynjar Ingi Erluson
Aston Villa samþykkir tilboð Chelsea í Martínez

Emi Martínez er á leið til Chelsea

Mynd: EPA

Emi Martínez er á leið til Chelsea

Mynd: EPA
Argentínski landsliðsmarkvörðurinn Emiliano Martínez er á leið frá Aston Villa til Chelsea fyrir 7,5 milljónir punda. David Ornstein hjá Athletic segir frá.
Martínez, sem er 33 ára, hefur undanfarin sumur leitað leiða til að komast til stærra félags.
Hann var sterklega orðaður við Juventus fyrr í sumar en ítalska félagið dró sig úr viðræðum þar sem það vildi ekki greiða meira en fimm milljónir punda fyrir markvörðinn.
Chelsea ákvað að sækja markvörð á lokadögum félagaskiptagluggans og setti sig í samband við Aston Villa. Viðræðurnar gengu hratt fyrir sig og hafa félögin náð samkomulagi um kaupverð upp á 7,5 milljónir punda.
Martínez mun skrifa undir tveggja ára samning við Chelsea með möguleika á eins árs framlengingu.
Argentínumaðurinn virðist því loksins vera að fá draumaskiptin. Búist er við að hann ýti Robert Sanchez úr markinu en Spánverjinn átti afar slakan leik í 3-2 sigri Chelsea gegn Fulham á mánudag.
Aston Villa hefur þegar fundið nýjan aðalmarkvörð en félagið fékk japanska landsliðsmarkvörðinn Zion Suzuki frá Parma á dögunum.

???? BREAKING: Chelsea reach agreement with Aston Villa to sign Emi Martinez. Permanent deal for 33yo #AVFC goalkeeper worth £7.5m & Argentina international to join #CFC on 2y contract + option to extend at Stamford Bridge by further 12 months @TheAthleticFC https://t.co/onMvgCFTPY
— David Ornstein (@David_Ornstein) August 27, 2026