27.08.26 - 18:05
Brynjar Ingi Erluson
Atlético opnar dyrnar fyrir Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska félagið Atlético Madríd hefur opnað á viðræður um sölu á argentínska sóknarmanninum Julian Alvarez. Félagið er reiðubúið að selja hann í sumar, en útilokar alfarið að hann fari til Barcelona.
Alvarez hefur gefið það skýrt út að hann vilji yfirgefa Atlético Madríd og ganga í raðir Barcelona.
Áhugi Barcelona á Argentínumanninum hefur verið mikið til umræðu að undanförnu. Stjórnarmenn félagsins hafa rætt hann opinberlega og málið fengið mikla umfjöllun hjá spænskum miðlum og Fabrizio Romano.
Sú umræða virðist hafa komið Alvarez úr jafnvægi og hefur hann reynt að þrýsta á Atlético að leyfa sér að fara.
Leiðin til baka virðist í það minnsta torsótt hjá stuðningsmönnum félagsins. Þeir bauluðu á Alvarez þegar hann kom inn á sem varamaður um helgina og að leik loknum var honum gert að fara beint inn í klefa.
Atlético hefur tekið skýrt fram að félagið muni ekki selja hann til Barcelona. Gil Marin, framkvæmdastjóri Atlético, hefur hins vegar opnað dyrnar fyrir tilboðum frá öðrum félögum þótt hann vilji helst halda Argentínumanninum.
„Draumurinn er að Julian verði áfram hjá Atlético, svo lengi sem hann vill það sjálfur. Ef ekki munum við skoða aðra kosti. En eitt get ég sagt ykkur: Hann fer aldrei til Barcelona,“ sagði Gil Marin.
Arsenal hefur mikinn áhuga á Alvarez og er reiðubúið að leggja fram tilboð. Leikmaðurinn hefur þó hingað til ekki viljað snúa aftur til Englands.
Staðan virðist því vera sú að Alvarez eigi tveggja kosta völ: Að ganga til liðs við Arsenal eða vera áfram hjá Atlético og vinna sér aftur inn traust félagsins og stuðningsmannanna.