Fotbolti.net
27.08.26 - 20:38
Brynjar Ingi Erluson

Brighton í Sambandsdeildina

Brighton í Sambandsdeildina
Canon

Mynd: EPA

Brighton 4 - 0 Tromso (4-0, samanlagt)
1-0 Charalampos Kostoulas ('22 )
2-0 Maxim De Cuyper ('33 )
3-0 Mats Wieffer ('38 )
4-0 Olivier Boscagli ('86 )
Brighton er komið í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar eftir öruggan 4-0 sigur gegn norska liðinu Tromsö á AMEX-leikvanginum í kvöld.

Enska úrvalsdeildarliðið ætlaði sér að bæta upp fyrir markalausa jafnteflið í Noregi í síðustu viku og gerði það svo sannarlega. Brighton skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik og gerði út um einvígið fyrir hlé.

Grikkinn Charalampos Koustoulas braut ísinn með föstu skoti eftir að Brighton vann boltann hátt á vellinum með frábærri pressu. Annað markið kom með svipuðum hætti þegar Tromsö reyndi að spila sig út úr vörninni en Maxim De Cuyper vann boltann og skoraði.

Mats Wieffer bætti þriðja markinu við á 38. mínútu. Sending fór þá af varnarmanni Tromsö og boltinn hrökk fyrir Wieffer sem hamraði hann í vinstra hornið.

Miðvörðurinn Olivier Boscagli rak síðan smiðshöggið undir lok leiksins með skoti fyrir utan vítateig. Boltinn fór af varnarmanni og söng neðst í fjærhorninu.

Þetta var fagmannleg frammistaða hjá Brighton sem er komið í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar og leikur nú í Evrópukeppni í annað sinn í sögu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.