Fotbolti.net
27.08.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarliðin í enska deildabikarnum: Tíu breytingar og tvíburar mætast

Shea Charles byrjar sinn fyrsta leik fyrir Fulham

Shea Charles byrjar sinn fyrsta leik fyrir Fulham

Canon

Mynd: Fulham

Fulham tekur á móti Wimbledon í 2. umferð enska deildabikarsins á Craven Cottage í Lundúnum klukkan 19:00 í kvöld.
Alvaro Arbeloa gerir tíu breytingar á byrjunarliðinu frá 3-2 tapinu gegn Chelsea á mánudag.

Norðmaðurinn Oscar Bobb er sá eini sem heldur sæti sínu. Shea Charles byrjar sinn fyrsta leik fyrir félagið síðan hann kom frá Southampton og Luc De Fougerolles er í byrjunarliðinu í fyrsta sinn síðan í nóvember 2023.

Þá verður sérstaklega áhugavert að fylgjast með einvígi tvíburabræðranna Ryan og Steven Sessegnon. Ryan leikur með Fulham en Steven er í herbúðum Wimbledon. Steven var áður á mála hjá Fulham en yfirgaf félagið fyrir þremur árum.

Fulham: Lecomte, Sessegnon, Andersen, De Fougerellos, Tete, Reed (C), Charles, Bobb, Kevin, Smith Rowe, Rodrigo Muniz

Wimbledon: Bishop, Harrison, Hippolyte, Maycock, Sasu, Seddon, Sessegnon, Smith (C), Sweeney, Tilley, Yiadom

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.