27.08.26 - 15:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea kaupir einn heiðarlegan á 40 milljónir punda

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Atalanta hefur samþykkt tilboð Chelsea í Honest Ahanor. Ahanor er 18 ára örvfættur miðvörður sem verður að öllum líkindum lánaður frá Chelsea til að þróa leik sinn áfram. Möguleiki er á því að hann fari til Strasbourg sem er systurfélag Chelsea.
Ahanor kom til Atalanta í fyrra frá Genoa og hefur spilað 22 deildarleiki fyrir félagið, níu Meistaradeildarleiki og tvo A-landsleiki fyrir Ítalíu. Landsleikirnir voru í sumar þegar Ítalir tefldu fram mjög ungu landsliði.
Chelsea og Atalanta hafa átt í góðum samskiptum í sumar því Marco Palestra var keyptur til Chelsea fyrr í sumar.

Upphæðin sem Chelsea greiðir fyrir Ahanor er talinn nema um 40 milljónum punda en hluti af henni er út frá árangurstengdum greiðslum. Ahanor er búinn að fá grænt ljós á að ferðast og gangast undir læknisskoðun hjá Chelsea hvar hann mun svo skrifa undir langtímasamning.
Ahanor hefur sagt frá því að ítalska goðsögnin Paolo Maldini sé fyrirmynd sín í fótboltanum.
Ahanor hefur sagt frá því að ítalska goðsögnin Paolo Maldini sé fyrirmynd sín í fótboltanum.