Fotbolti.net
27.08.26 - 20:58
Brynjar Ingi Erluson

Enski deildabikarinn: Þrjú mörk í fyrsta sigri Arbeloa með Fulham

Gonzalo Garcia skoraði annan leikinn í röð með Fulham

Gonzalo Garcia skoraði annan leikinn í röð með Fulham

Canon

Mynd: EPA

Fulham 3 - 0 Wimbledon
1-0 Emile Smith-Rowe ('37 )
2-0 Rodrigo Muniz ('42 )
3-0 Gonzalo Manuel Garcia ('90 )
Alvaro Arbeloa og lærisveinar hans í Fulham unnu öruggan 3-0 sigur gegn Wimbledon í 2. umferð enska deildabikarsins í kvöld.

Arbeloa gerði tíu breytingar á liðinu frá leiknum gegn Chelsea á mánudag en það virtist litlu breyta. Fulham hafði mikla yfirburði og lagði grunninn að sigrinum með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Emile Smith Rowe braut ísinn með skalla af stuttu færi eftir frábæra sókn. Kenny Tete sendi háan bolta frá hægri yfir á fjærstöng þar sem Ryan Sessegnon skallaði boltann fyrir markið. Smith Rowe fleytti honum áfram með höfðinu og yfir línuna.

Rodrigo Muniz bætti öðru marki við skömmu síðar, einnig með skalla eftir fyrirgjöf frá Tete.

Spænski framherjinn Gonzalo Garcia rak síðan síðasta naglann í kistu Wimbledon í uppbótartíma, tuttugu mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð fyrir Fulham en Garcia fylgdi Arbeloa frá Real Madrid í sumar.

Þægilegur sigur hjá Fulham sem er komið í 3. umferð deildabikarsins þar sem liðið heimsækir West Ham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.