27.08.26 - 17:35
Brynjar Ingi Erluson
Enzo ekki í hópnum hjá Chelsea - Brighton getur komist í Evrópukeppni í annað sinn

Enzo vill fara til Man City

Mynd: EPA

Enzo vill fara til Man City

Mynd: EPA
Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez er ekki í hópnum hjá Chelsea sem tekur á móti Luton í 2. umferð enska deildabikarsins á Stamford Bridge klukkan 18:30 í kvöld.
Þessar fregnir koma verulega á óvart enda sagði Xabi Alonso, stjóri Chelsea, í gær að Enzo Fernandez væri til taks.
Það má þó lesa á milli línanna en Manchester City er sagt undirbúa tilboð í Enzo sem vill ólmur endurnýja kynni sín við Enzo Maresca.
Alonso gerir nokkrar breytingar á liðinu. Mike Penders kemur í markið í stað Robert Sanchez sem átti hörmulegan leik í 3-2 sigrinum gegn Fulham á mánudag.
Pep Chavarria byrjar sinn fyrsta leik fyrir Chelsea og þeir Estevao, Valentin Barco og Danny Welbeck koma einnig inn í byrjunarliðið.
Chelsea:Penders, Gusto, Acheampong, Lacroix, Chavarria, James, Barco, Estevao, Palmer, Rogers, Welbeck
Brighton tekur þá á móti Tromsö í umspili Sambandsdeildarinnar en sá leikur hefst einnig klukkan 18:30. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli í Noregi.
Fabian Hürzeler stillir upp sterku liði en Brighton á möguleika á því að komast í deildarkeppni í Evrópu í annað sinn í sögu félagsins.
Lið Brighton gegn Tromsö: Verbruggen, De Cuyper, Dunk (C), Vuskovic, Boscagli, Ayari, Wieffer, Gomez, O'Reily, Gross, Kostoulas.