Fotbolti.net
27.08.26 - 12:31
Elvar Geir Magnússon

Frá 'Viltu vinna milljón' í Meistaradeildina

Valdas Dambrauskas.

Valdas Dambrauskas.

Canon

Mynd: EPA

Valdas Dambrauskas er stjóri Sabah frá Aserbaísjan sem afrekaði það í vikunni að vinna sér inn sæti í Meistaradeild Evrópu. Vegferð Dambrauskas, sem er 49 ára Litái, er í meira lagi áhugaverð.

Hann sá það fljótt að hann myndi ekki ná langt sem leikmaður og átti sér þá þann draum að verða þjálfari. Eftir að hann vann litáísku útgáfuna af sjónvarpsþættinum 'Viltu vinna milljón' (Šeši nuliai – milijonas) þegar hann var 25 ára þá fóru hlutirnir að gerast.

Upphæðin sem hann vann samsvaraði árslaunum að meðaltali í Litáen og hann notaði peninginn til að flytja til Englands til að mennta sig í þjálfarafræðunum.

Meðan hann var í námi starfaði hann við þjálfun hjá yngri liðum Fulham, Manchester United og Brentford og stundaði síðan nám við íþróttaháskóla í Vilnius.
Samhliða því að mennta sig í þjálfun vann hann ýmis störf; í búð, fluttist með dagblöð, vann í leikskóla og fleira. Stóran hluta af innkomunni notaði hann í að mennta sig í þjálfun og kaupa bækur.

Árið 2007 tók hann við þjálfun enska utandeildarliðsins Kingsbury London Tigers sem var í 9. deild. Hann fór síðan í þjálfun hjá yngri landsliðum Litáen og var ráðinn aðstoðarþjálfari litáísku meistarana í Ekranas. Hann tók síðan við sem aðalþjálfari og mætti FH í Kaplakrika í Evrópueinvígi 2013 en FH vann einvígið 3-1.

Hann tók svo við litáísku meisturunum í Zalgiris, vann titla og vann sig upp stigann í Eystrasaltinu áður en hann fór austar í Evrópu. Hann vann titla með Ludogorets Razgrad og Hajduk Split. Fyrir ári síðan var hann ráðinn til Sabah og liðið varð aserskur meistari í fyrsta sinn undir hans stjórn.

En hans stærsta afrek kom núna í vikunni þegar hann kom Sabah í Meistaradeildina með 6-4 sigri samanlagt gegn Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael.
Dambrauskas vann spurningaleik í sjónvarpi og þá fóru hlutirnir að gerast.

Dambrauskas vann spurningaleik í sjónvarpi og þá fóru hlutirnir að gerast.

Canon

Mynd: Skjáskot

Velko Simic, leikmaður Sabah, fagnar marki.

Velko Simic, leikmaður Sabah, fagnar marki.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.