27.08.26 - 18:06
Brynjar Ingi Erluson
Freysi stjóri mánaðarins - „Sýnir hversu fljótt hlutirnir geta breyst í fótbolta“

Freyr er stjóri mánaðarins fyrir júlí

Mynd: Rosenborg

Freyr er stjóri mánaðarins fyrir júlí

Mynd: Rosenborg
Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg, hefur verið valinn stjóri mánaðarins í norsku úrvalsdeildinni eftir frábæra byrjun með liðið.
Freyr tók við liðinu aðeins nokkrum dögum eftir að honum var sagt upp hjá Brann. Rosenborg var þá í mikilli lægð en hefur unnið sex af fyrstu sjö leikjunum undir stjórn Freys.
Liðið er komið upp í sjöunda sæti deildarinnar og í harða baráttu um Evrópusæti. Adrian Pereira, leikmaður Rosenborg, afhenti Frey verðlaunin á liðsfundi í dag.
„Við erum með þjálfara sem kynnti okkur fyrir þungarokksfótbolta og hefur fært mörgum leikmönnum og stuðningsmönnum mikla gleðði. Þessi verðlaun eru hans en ræða mín verður aðeins styttri en þín. Til hamingju, þetta er vel verðskuldað,“ sagði Pereira.
Freyr notaði tækifærið til að minna á hversu hratt hlutirnir geta breyst í fótboltanum.
„Þetta sýnir hversu fljótt hlutirnir geta breyst í fótbolta. Ég var atvinnulaus í byrjun júlí. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um svona verðlaun en ég tek við þeim. Þetta snýst samt ekkert um mig heldur okkur alla,“ sagði Freyr.

- Der ser vi hvor fort det snur i fotball. I starten av den måneden, hadde jeg ikke jobb ????
— Rosenborg Ballklub (@RBKfotball) August 27, 2026
Freyr Alexandersson er kåret til Altibox månedens trener i Eliteserien for juli 2026, av en jury bestående av Norsk Toppfotball og TV 2 ???? pic.twitter.com/vsInJem2EI