Fotbolti.net
27.08.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Harvey Elliott til Ítalíu?

Harvey Elliott til Ítalíu?
Canon

Mynd: EPA

Ítölsku félögin Lazio og Napoli hafa áhuga á því að fá enska miðjumanninn Harvey Elliott frá Liverpool.
Elliott virðist ekki vera hluti af áætlunum Andoni Iraola, rétt eins og hjá Arne Slot áður.

Hann var á láni hjá Aston Villa á síðustu leiktíð en samkomulag félaganna hafði mikil áhrif á spilatíma hans. Í lánssamningnum var kaupskylda sem virkjaðist ef Elliott næði ákveðnum leikjafjölda en þar sem Villa hafði engan áhuga á að gera félagaskiptin varanleg fékk hann lítið að spila.

Elliott sneri aftur til Liverpool í sumar og fékk tækifæri á undirbúningstímabilinu en var ekki í leikmannahópnum gegn Newcastle í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.

Peter O'Rourke hjá Football Insider segir Lazio og Napoli vera meðal fjölmargra félaga sem vilja fá Elliott áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.

Samkvæmt CaughtOffside er Liverpool tilbúið að selja hann fyrir svipaða upphæð og félagið fékk fyrir Curtis Jones, eða um 30 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.