27.08.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kean fer til Fabregas

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Moise Kean er á förum frá Fiorentina og er að ganga í raðir Como á láni sem verður í kjölfarið að kaupum.
Það er Fabrizio Romano sem segir frá. Hann segir að Como greiði 10 milljónir evra til að fá ítalska framherjann að láni og svo þarf Como að greiða 25 milljónir evra fyrir Kean í framhaldinu til að klára kaupin.
Kean mun því kosta Como 35 milljónir evra en sú upphæð getur svo hækkað um fimm milljónir evra út frá árangurstengdum greiðslum.

Kean hefur síðustu daga viljað koma sér frá Fiorentina og neitaði að æfa með liðinu.
Hjá Como mun hann vinna undir stjórn Cesc Fabregas og spila í Meistaradeildinni í vetur. Kean er 26 ára og hefur skorað 13 mörk í 26 leikjum með ítalska landsliðinu. Hann hefur verið á mála hjá Everton, Juventus og Fiorentina á sínum ferli og farið á láni til PSG og Hellas Verona.
Fiorentina er í viðræðum við Manchester United um að fá Joshua Zirkzee til Ítalíu.
Albert Guðmundsson er leikmaður Fiorentina.