27.08.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Miðasala á bikarúrslitaleikina farin af stað

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðasala á úrslitaleiki Mjólkurbikars karla og kvenna hófst í hádeginu á miðasöluvef KSÍ.
Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla á Laugardalsvelli föstudaginn 11. september kl. 19:00. Mosfellingar eru í efsta sæti Lengjudeildarinnar en Blikar í fjórða sæti Bestu deildarinnar.
Grindavík/Njarðvík og Þróttur mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á Laugardalsvelli laugardaginn 12. september kl. 16:00. Liðin eru í fimmta og sjötta sæti Bestu deildar kvenna.
Miðasöluvefur KSÍ