27.08.26 - 20:27
Brynjar Ingi Erluson
Sambandsdeildin: Evrópudraumur Víkinga úti

Víkingar eru úr leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borac er komið í Sambandsdeildina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar eru úr leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Borac 3 - 1 Víkingur R. (6-2, samanlagt)
0-1 Damir Hrelja ('17 , sjálfsmark)
1-1 Sebastián Herera ('55 )
2-1 Luka Juricic ('66 )
3-1 Pavle Dajic ('90 )
Lestu um leikinn
0-1 Damir Hrelja ('17 , sjálfsmark)
1-1 Sebastián Herera ('55 )
2-1 Luka Juricic ('66 )
3-1 Pavle Dajic ('90 )
Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings eru úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir 3-1 tap gegn Borac í síðari leik liðanna í kvöld. Borac vann einvígið 6-2 samanlagt og tryggði sér sæti í deildarkeppninni.
Það var ljóst að verkefnið yrði erfitt fyrir Víkinga sem voru komnir með bakið upp við vegg eftir 3-1 tap í fyrri leiknum í Víkinni. Þeir mættu þó af miklum krafti til leiks, sköpuðu sér færi og komust yfir á 17. mínútu.
Stígur Diljan Þórðarson fékk þá boltann vinstra megin, lék inn í vítateiginn og sendi fyrir markið. Boltinn fór af Damir Hrelja, varnarmanni Borac, og þaðan í nærhornið.
Draumabyrjun hjá Víkingum sem héldu áfram að sækja. Gylfi Þór Sigurðsson átti ágæta tilraun og skömmu síðar var Aron Elís Þrándarson hársbreidd frá því að bæta við marki þegar skot hans eftir fyrirgjöf Hrannars Snæs Magnússonar fór í slána.
Borac náði betri tökum á leiknum undir lok fyrri hálfleiks en tókst ekki að jafna fyrir hlé. Víkingar gátu því leyft sér að dreyma eftir afar öflugan fyrri hálfleik, en heimamenn tóku að sækja af meiri þunga í upphafi þess síðari.
Jöfnunarmarkið kom þegar um tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Gylfi Þór braut af sér rétt utan vítateigs og Sebastian Herrera skoraði úr aukaspyrnunni með föstu skoti. Borac var þar með aftur komið í tveggja marka forystu í einvíginu.
Víkingar gerðu þrefalda breytingu eftir rúmlega klukkutíma en skömmu síðar kom Luka Juricic heimamönnum yfir. Borac komst þá í gegnum vörn Víkinga og boltinn var sendur fyrir markið á Juricic sem drap endanlega vonir gestanna. Juricic reyndist Víkingum mjög erfiður í viðureigninni, en hann skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt í leikjunum tveimur.
Undir lokin settu Víkingar alla fram til að reyna að komast aftur inn í einvígið en voru fámannaðir aftast og komust Borac-menn í skyndisókn sem Pavle Dajic kláraði og þar við sat.
Leiknum lauk með 3-1 sigri Borac sem vann einvígið 6-2 samanlagt. Víkingar missa því af sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar annað árið í röð.
Nú fer öll einbeiting Víkinga á Bestu deildina þar sem liðið er með átta stiga forskot á toppnum þegar sjö leikir eru eftir.