Fotbolti.net
27.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Senegalskur miðjumaður orðaður við Liverpool

Lamine Camara

Lamine Camara

Canon

Mynd: EPA

Liverpool ætlar að styrkja leikmannahópinn á næstu dögum og gæti varnarsinnaður miðjumaður bæst við. Senegalinn Lamine Camara er sagður koma til greina.
Sarr verður ekki með Palace gegn City
TENGT EFNI

Sarr verður ekki með Palace gegn City

Camara er 22 ára og hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína á miðsvæði Monaco undanfarin tímabil.

Hann er metinn á um 50 milljónir punda og Monaco virðist þegar vera farið að undirbúa sig fyrir mögulega brottför hans. Félagið hefur augastað á Pape Matar Sarr hjá Tottenham og Erik Lira sem leikur með Cruz Azul í Mexíkó.

Monaco glímir við fjárhagserfiðleika og gæti því neyðst til að selja Camara áður en félagaskiptaglugganum verður lokað. Senegalski blaðamaðurinn LaLoumance, sem starfar hjá Foot Mercato, heldur því fram að Liverpool hafi mikinn áhuga á miðjumanninum.

LaLoumance þykir mjög áreiðanlegur þegar kemur að senegölskum leikmönnum en við færslu um Ismaila Sarr og Liverpool skrifaði hann: „Þetta er ekki eini Senegalinn sem gæti samið við Liverpool.“

Camara yrði ódýrari kostur en til dæmis Adam Wharton sem Crystal Palace telur nánast ósnertanlegan í sumar nema gríðarlega hátt tilboð berist.

Daniel Sturridge, fyrrverandi leikmaður Liverpool, telur að varnarsinnaður miðjumaður eigi að vera forgangsmál hjá félaginu. Hann segir Liverpool hafa vantað slíkan leikmann síðustu þrjú ár, eða allt frá því að Fabinho yfirgaf félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.